Fjölnismenn sóttu tvö gríðarlega mikilvæg stig á Akranes í kvöld. Með þessum sigri tryggðu þeir sér annað sæti deildarinnar og þar af leiðandi heimavallarréttinn í úrslitakeppninni sama hversu langt þeir fara í keppninni.
Leikurinn
Fjölnir leiddi leikinn meira og minna en ÍA gerði stöku árás en náðu aldrei að ógna gestunum að neinni alvöru. Lokatölur 81-100 fyrir Fjölnir. Fjölnir á leiðinni í úrslitakeppnina en ÍA á leiðinni á lokahóf.
Vendipunkturinn
Þriðji leikhluti vóg þungt í leiknum. Fjölnir kom með þægilega forystu inn í hálfleikinn og kláraði leikinn svo í þriðja leikhluta.
Áhugguefni
Það að Róbert Sigurðsson skuli hafa farið meiddur af leikvelli var svartur blettur á björtu kvöldi Fjölnis. Vonandi að meiðslin séu ekki alvarleg því það vilja allir hafa öll lið fullskipuð í úrslitakeppninni. Allavega allir þeir hlutlausu.
Fremstir meðal jafningja voru Derek hjá ÍA og Collin hjá Fjölni.
Texti / HGH
Myndir / HGH og Jónas




