HomeNeðri deildir1. deild karlaFjölnir hélt lífi - Snæfell úr leik

Fjölnir hélt lífi – Snæfell úr leik

Tveir leikir fóru fram í 8 liða úrslitum fyrstu deildar karla í kvöld.

Sindri tryggði sér sæti í undanúrslitum með öruggum 88-78 sigri á Snæfelli í Ice Lagoon höllinni. Með þessum sigri vann Sindri einvígið samanlagt 3-0 og eru þeir fyrsta liðið til að komast áfram. Snæfellingar mættu af krafti í þriðja leikhluta en heimamenn stóðust áhlaupið og kláruðu verkefnið með góðum lokafjórðungi fyrir framan 187 áhorfendur.

Fjölnir tókst að halda lífi í voninni með mikilvægum 97-83 heimasigri gegn KV í Dalhúsum. KV leiðir nú einvígið 2-1, en Fjölnismenn sýndu mikinn styrk í seinni hálfleik og knúðu fram fjórða leikinn með því að skora 23 stig í báðum síðustu fjórðungunum. Nú færist spennan yfir á völl KV þar sem Fjölnir verður aftur að vinna.

Tölfræði leikja

Fréttir
- Auglýsing -