Fjölnir og Njarðvík mættust í Grafarvogi í kvöld og var mikið í húfi fyrir bæði liðin. Njarðvík að berjast um deildarmeistaratitilinn og Fjölnir að berjast fyrir sæti sínu í deildinni.
Njarðvík byrjaði betur en Fjölniskonur voru þó aldrei langt undan, staðan eftir fyrsta leikhluta var 22-25 fyrir Njarðvík, hjá þeim grænu voru Lele og Petrúnella að spila vel og héldu leik Njarðvíkur gangandi en hjá Fjölni voru Katina og Brittney að skila stigum á töfluna.
Í öðrum leikhluta var mjög jafnt með liðum og skiptust liðin á að skora og í hálfleik var staðan 39-43, Ólöf Helga var eina í villuvandræðum hjá Njarðvík og fékk sína 4 villu í þriðja leikhluta og hún tekin útaf og hvíld.
Þegar síga tók á þriðja leikhluta fór Fjölnisliðið í gang og tók völdin í leiknum, Jessica Bradley var Njarðvíkurstúlkum erfið viðureignar í teignum og lokaði vel á körfuna. Þegar fjórði leikhluti var hálfnaður var Njarðvík búið að gefast upp, Fjölnir var 18 stigum yfir og allt gékk upp hjá þeim í sókn og vörn. Leikurinn endaði með sterkum sigri Fjölnis 87 – 76 og með honum gulltryggðu þær sér sæti í úrvalsdeildinni að ári.
Punktar úr leik.
Fjölnir heldur sæti sínu í deildinni
Njarðvík náði ekki að landa deildarmeistaratitli með þessu tapi
Fjölnir hafa nú unnið fjóra leiki í röð
Njarðvík lék án Baker Brice og Ingibjörg Elva tók slaginn með þeim í þessum leik.
Logi Geirsson vakti lukku hjá yngri kynslóðinni þegar hann mætti á svæðið.
Heildarskor leiksins:
Fjölnir: Brittney Jones 28/5 fráköst/10 stoðsendingar, Katina Mandylaris 23/19 fráköst, Jessica Bradley 18/9 fráköst, Erla Sif Kristinsdóttir 9, Birna Eiríksdóttir 3, Margrét Loftsdóttir 2, Bergdís Ragnarsdóttir 2/7 fráköst, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2/7 fráköst, Margrét Helga Hagbarðsdóttir 0, Eva María Emilsdóttir 0, Erna María Sveinsdóttir 0, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 0.
Njarðvík: Lele Hardy 24/20 fráköst/7 stoðsendingar, Petrúnella Skúladóttir 16/6 fráköst, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 10/5 fráköst, Salbjörg Sævarsdóttir 6/5 fráköst, Ína María Einarsdóttir 6, Sara Dögg Margeirsdóttir 6, Harpa Hallgrímsdóttir 2, Ólöf Helga Pálsdóttir 2, Eyrún Líf Sigurðardóttir 2, Erna Hákonardóttir 2, Ásdís Vala Freysdóttir 0, Andrea Björt Ólafsdóttir 0.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson, Davíð Hreiðarsson
Mynd með frétt: Karl West
Umfjöllun: Karl West




