Á dögunum bárust þau tíðindi að fyrrum körfuboltakonan og nú lyftingadrottningin Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir hefði hent upp 112,5 kg. í bekkpressu. Í kjölsogið af þessum tíðindum köstuðum við fram spurningu á karlalandsliðið sem valið var á dögunum af lesendum Karfan.is. Stóra spurningin, hvað þeir tækju í bekk var sett fram þann 7. júní og síðan þá hefur eitt svar borist.
Fyrsti og eini til að svara var KR-ingurinn Finnur Atli Magnússon sem kvaðst hafa ,,maxað" 270 pund þegar hann var í háskólanámi í Bandaríkjunum. ,,Menn voru 3x í viku í bekk og hallandi bekk sem er nátturulega bara vitleysa! Ég hef tekið 110kg löglega samkvæmt kraftlyftinga standard á Íslandi," sagði Finnur í svarbréfi sínu.
Hinir ellefu sem ekki hafa svarað hefðu vísast verið dæmdir í ,,fjörbaugsgarð" fyrir þögn sína hér á öldum áður en við tökum henni sem staðfestingu á því að vera undir 112,5 kg í bekknum.
Tengt efni:




