spot_img
HomeLandsliðinEuroBasket 2025Finnland og Þýskaland í fjögurra liða úrslit - Luka úr leik í...

Finnland og Þýskaland í fjögurra liða úrslit – Luka úr leik í Riga

Átt liða úrslit lokamóts EuroBasket kláruðust í dag með tveimur leikjum.

Í gær höfðu Tyrkland og Grikkland tryggt sig áfram í undanúrslitin, en þau verða leikin komandi föstudag 12. september.

Í dag lagði Finnland svo lið Georgíu og Þýskaland hafði betur gegn Slóveníu.

Fyrri undanúrslitaleikur föstudagsins er leikur Þýskalands og Finnlands, en hann er á dagskrá kl. 14:00. Seinni viðureignin er svo leikur Tyrklands og Grikklands og er hann á dagskrá kl. 18:00.

Tölfræði leikja

Úrslit dagsins

EuroBasket – 8 liða úrslit

Finnland 93 – 79 Georgía

Þýskaland 99 – 91 Slóvenía

Fréttir
- Auglýsing -