Sigur Finna var aldrei í hættu og eftir fyrsta leikhluta leiddu þeir 37-18. Eins og áður sagði var Petteri Koponen stigahæstur með 29 stig en Koponen þessi lék lengi með Bologna á Ítalíu en skipti til BC Khimki í Rússlandi í sumar. Hann var valinn í NBA af Philadelphia 76ers árið 2007 en var svo skipt til Dallas Mavericks. Næst stigahæstur Finna var Shawn Huff en þess má geta að hinn aldni Hanno Möttöla lék 16 mínútur í leiknum og skoraði 9 stig. Gerti Shima skoraði 23 stig fyrir Albani og Klaudio Ndoja var með 18.
Þett var fyrsti leikur Finna í keppninni en Albanir hafa tapað báðum leikjum sínum, töpuðu heima fyrir Sviss á miðvikudag.
Í dag fara svo fram 12 leikir og meðal þeirra er leikur Slóvakíu og Íslands í borginni Levice í Slóvakíu og hefst hann klukkan 18 að staðartíma, 16 á íslenskum.
Einn leikur fór fram í undankeppni EuroBasket 2013 í gær þegar Finnar gjörsigruðu Albani á heimavelli 112-77 í E riðli. Petteri Koponen var stigahæstur þeirra með 29 stig.




