HomeFréttirFimm stiga tap gegn heimadrengjum

Fimm stiga tap gegn heimadrengjum

Íslenska U15 landslið drengja mátti þola svekkjandi tap gegn heimaliði Finnlands, 71–76, í öðrum leik sínum á opna Norðurlandamótinu í Kisakallio í dag.

Íslensku strákarnir hófu leikinn með miklum glæsibrag, spiluðu frábæran fyrsta leikhluta (27–12) og náðu mest 17 stiga forskoti. Ísland var með forystuna í ríflega 25 mínútur af leiknum en Finnar sigu jafnt og þétt í gegn og náðu að snúa leiknum sér í hag í seinni hálfleik.

Sölvi Arnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 16 stig. Albert Þorleifsson skoraði 12 stig, Guðmundur Noel Jónsson var með 11 stig og Benedikt Þórólfsson skilaði 10 stigum af bekknum. Þá bættu Einar Eyþórsson (8 stig) og Óttar Davíðsson (7 stig) einnig við mikilvægum framlögum.

Eftir tvo nauma tapleiki fá drengirnir frí á morgun, miðvikudag, en leika sinn síðasta leik á mótinu gegn Danmörku á fimmtudaginn.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -