spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaFimm líklegustu leikmennirnir í Bónus deildinni til að vera með burner account

Fimm líklegustu leikmennirnir í Bónus deildinni til að vera með burner account

Sjötti maðurinn kom saman og ræddi stöðuna í efstu tveimur deildum karla.

Til umræðu er síðasta og næsta umferð í Bónus deild karla, kraftröðun fyrir deildina og margt, margt fleira.

Hérna er þátturinn á Spotify

Þá fara stjórnendur þáttarins yfir hvaða fimm leikmenn Bónus deildar karla eru líklegastir til þess að vera með burner account til að taka þátt í umræðu á samfélagsmiðlum, en með því er átt við að þeir hafi útbúið nafnlausa reikninga til þess að geta tekið þátt í umræðu án þess að hægt væri að tengja þá við hana. Slíkt er að sjálfsögðu ekki algengt, en þó hafa einhverjir leikmenn úti í hinum stóra heimi líkt og Kevin Durant orðið uppvísir að hafa gert nákvæmlega það.

Hér fyrir neðan má sjá listann og nálgast má umræðuna í síðasta þætti af Sjötta manninum. Nauðsynlegt er að minna á að sjálfsögðu er þetta sett saman af stjórnendum Sjötta mannsins til þess að hafa gaman og ekki eru til neinar sönnur þess að þessir leikmenn séu í raun og veru með gervimenni að tala fyrir sig á samfélagsmiðlum.

Hákon Örn – ÍR

Topp 5 líklegastir í Bónus deildinni til að vera með burner account

1. Nikola Miscovic / Álftanes

2. Hákon Örn Hjálmarsson / ÍR

3. Dedrick Basile / Tindastóll

4. Ilija Djokovic / ÍA

5. Giannis Agravanis / Stjarnan

Fréttir
- Auglýsing -