spot_img
HomeFréttirFimm leikir í Iceland Express deild karla: Njarðvík-KR í beinni á SÝN

Fimm leikir í Iceland Express deild karla: Njarðvík-KR í beinni á SÝN

12:27
{mosimage}

 

(Friðrik Stefánsson fagnaði vel bikarsigri Njarðvíkinga gegn KR á dögunum) 

 

Fimm leikir eru á dagskrá í Iceland Express deild karla í kvöld þar sem KR getur jafnað Keflavík á toppi deildarinnar. Keflavík mætir ÍR í Seljaskóla og Njarðvík tekur á móti KR í Ljónagryfjunni. Takist KR að ná sigri í Njarðvík og Keflavík tapar í Seljaskóla verða tvö lið efst og jöfn að stigum á toppi deildarinnar. Þá tekur Grindavík á móti Tindastól, Fjölnir fær Skallagrím í heimsókn og Snæfell tekur á móti Hamri.

 

KR á harma að hefna í Ljónagryfjunni en Njarðvíkingar slógu þá út úr Lýsingarbikarkeppninni á dögunum og rimmur þessara liða eru jafnan spennuþrungnar. KR hafði sigur í fyrri deildarleik liðanna í DHL-Höllinni með þriggja stiga flautukörfu frá landsliðsmanninum Helga Má Magnússyni svo von er hörkuleik í Ljónagryfjunni. Egill Jónasson verður ekki með í Njarðvíkurliðinu í kvöld sökum meiðsla svo mikið mun mæða á miðherjanum Friðriki Stefánssyni.

 

Í Grindavík mætir Kristinn Friðriksson með lærisveina sína frá Sauðárkróki en Kristinn þjálfaði Grindvíkinga um hríð og er því öllum hnútum kunnugur í Röstinni. Fyrri leikur liðanna fór 78-90 fyrir Grindavík þegar liðin mættust á Króknum í nóvember.

 

Keflvíkingar heimsækja ÍR í Seljaskóla en ÍR-ingar hafa verið að finna taktinn að undanförnu og lögðu m.a. Njarðvíkinga í Seljaskóla á dögunum. ÍR-ingar fengu þó ærlegan skell gegn Keflavík í Sláturhúsinu þann 1. nóvember en lokatölur þess leiks voru 1110-79 Keflvíkingum í vil.

 

Í Stykkishólmi fá Ágúst Björgvinsson og Hvergerðingar það vandasama verkefni að mæta heitum Snæfellingum sem nýverið slógu Njarðvíkinga út úr undanúrslitum Lýsingarbikarsins. Snæfellingar höfðu betur í fyrri deildarleik liðanna 70-77 í Hveragerði en það var mikill baráttuleikur og nú tefla Hamarsmenn fram nokkuð breyttu liði síðan í nóvember.

 

Vart þarf svo að tíunda ástina sem verður í Grafarvogi í kvöld þegar Fjölnir og Skallagrímur leika sinn annan leik í röð með skömmu millibili. Fjölnismenn gerðu magnaða för í Borgarnes í undanúrslitum Lýsingarbikarsins og slógu út Skallagrím. Ken Webb þjálfari Skallanna segir að sínir menn ætli sér að ná fram hefndum í kvöld og því má búast við miklum slag í Grafarvogi

Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15 og verður viðureign Njarðvíkur og KR sýnd í beinni útsendingu á SÝN.

Fréttir
- Auglýsing -