Fimm leikir fara fram í Bónus deild karla í kvöld.
Höttur tekur á móti KR á Egilsstöðum, ÍR fær Íslandsmeistara Vals í heimsókn í Skógarsel, Haukar og Njarðvík eigast við í Ólafssal, Álftanes heimsækir Tindastól í Síkið og í Blue höllinni mæta heimamenn í Keflavík liði Grindavíkur.
Leikir dagsins
Bónus deild karla
Höttur KR – kl. 18:00
ÍR Valur – kl. 19:15
Haukar Njarðvík – kl. 19:15
Tindastóll Álftanes – kl. 19:15
Keflavík Grindavík – kl. 19:30



