Tindastóll og Haukar buðu upp á skemmtilegan leik í kvöld í Síkinu. Lengi vel leit þó út að heimamenn færu með öruggan sigur af hólmi. Þeir voru mest með 19 stiga forskot í síðari hálfleik og þegar 5 mínútur voru eftir var staðan 84 – 68. Þá misstu Stólarnir Rikka meiddan af velli og leikur þeirra riðlaðist í kjölfarið, auk þess sem Haukarnir áttu sinn besta kafla í leiknum. Þeir náðu að minnka muninn í þrjú stig þegar ein og hálf mínúta var eftir, en nær komust þeir ekki og Tindastóll landaði 7 stiga sigri, 95 – 88.
Það var hefðbundið byrjunarlið heimamanna sem hóf leik; Rikki, Kiki, Hayward, Helgi Rafn og Sean. Gestirnir byrjuðu með Hauk, Semaj, Svein, Emil og Gerald.
Tindastóll byrjaði leikinn með hörkuvörn, stálu boltum í gríð og erg og komust í 8 – 0. Haukarnir mættu þá til leiks og minnkuðu muninn jafnt og þétt út fyrsta leikhluta og á endanum var jafnt 20 – 20 þegar hann var liðinn.
Stólarnir slógu ekkert af í varnarleiknum og héldu Haukum í 14 stigum í öðrum leikhluta.
Heimamenn sigu framúr og náðu mest 11 stiga forskoti, 42 – 31, en 3 síðustu stig leikhlutans voru Hauka og því munaði átta stigum í hálfleik, 42 – 34. Hayward Fain var atkvæða mikill fyrir heimamenn og skoraði 9 stig í fjórðungnum og var kominn með 12 stig í leikhléi sem og Sean Cunningham. Hjá gestunum voru Sveinn með 10 stig og Haukur með 7 atkvæðamestir.
Jafnræði hélst með liðunum framan af þriðja leikhluta. Um miðjan fjórðunginn var staðan 55 – 47. Þá skiptu heimamenn um gír, skoruðu á næstu rúmum þremur mínútum 15 – 5 á Haukana og voru komnir með þægilegt forskot. Haukarnir klóruðu aðeins í bakkann með þristi frá Erni og þremur stigum frá Sævari. Staðan að loknum þremur leikhlutum, 70 – 58.
Stólarnir virtust vera með leikinn í höndum sér framan af síðasta fjórðungi. Þegar leikhlutinn var akkúrat hálfnaður setti Rikki niður þrist í stöðunni 84 – 68 og lítið virtist geta komið í veg fyrir öruggan sigur. Í næstu sókn meiðist Rikki eftir að hafa fengið olnboga í höfðuðið svo hann fékk stóran skurð er blæddi nokkuð úr og varð hlé á leiknum. Var þetta algjört slys, þó sumir hafi viljað meina annað. Stólarnir voru þó ekki alveg sáttir og misstu taktinn í leik sínum við þetta hlé. Haukarnir gengu á lagið og skoruðu 16 – 2 á heimamenn og staðan skyndilega orðin 87 – 84 þegar ein og hálf mínúta var eftir og allt á suðupunkti í Síkinu. Stólarnir náðu þá að berja vörnina loks saman aftur og stoppuðu áhlaup gestana. Haukarnir reyndu að senda heimamenn á vítalínuna síðustu mínútuna, en þar voru Stólarnir öruggið uppmálað og höfðu að endingu 7 stiga sigur eins og áður segir, 95 – 88.
Bestir Tindastólsmanna voru Hayward og Sean, Hayward með 28 stig og 8 fráköst, en Sean með 20 stig og 6 stoðsendingar. Þá var Rikki öflugur á meðan hans naut við. Svavar, Kiki og Helgi Freyr skiluðu sínu, en oft hefur meira farið fyrir Helga Rafni.
Hjá Haukum var Gerald Robinson atkvæðamestur með 22 stig og 8 fráköst. Þá áttu Haukur Óskarsson og Sveinn Ómar Sveinsson mjög góðan leik.
Stigaskor Tindastóls: Hayward 28, Sean 20, Kiki 15, Rikki 13, Helgi Freyr 10, Helgi Rafn 5 og Svavar 4.
Haukar: Gerald 22, Haukur 17, Sveinn 16, Semaj 12, Örn 10, Sævar 5, Davíð 4 og Emil 2.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og Steinar Orri Sigurðsson. Voru samkvæmir sjálfum sér þó bæði lið hafi ekki alltaf verið sátt.
Texti: JS




