HomeBónus deildinBónus deild karlaFimm efnilegir leikmenn halda erlendis

Fimm efnilegir leikmenn halda erlendis

Valur sendir fimm unga leikmenn út í nám og keppni á komandi leiktíð.

Björn August Björnsson (16 ára) gengur til liðs við afreksakademíuna KICKZ IBAM í München í Þýskalandi, og Bjarmi Ragnarsson (14 ára) flytur til Spánar þar sem hann mun spila með ungmennaliði stórliðsins Valencia.

Þrír leikmenn halda svo til Bandaríkjanna. Páll Gústaf Einarsson (18 ára) hefur sitt annað ár vestanhafs hjá Northfield Mount Hermon í Massachusetts, Ísey Frost Guttormsdóttir (17 ára) gengur til liðs við Western Reserve Academy í Ohio, og Tómas Davíð Tómasson (21 árs) mun spila í háskólaboltanum með Montcalm Community College.

Hér má sjá færslu félagsins á Instagram

Fréttir
- Auglýsing -