Hér er nýjasti frá Filo og Guggu í boltanum, en hann var tekinn upp þegar Njarðvík og Álftanes háðu harða baráttu um sæti í úrslitakeppninni.
Í þættinum mæta þær í heimsókn á Álftanes til að kynna sér stemninguna sem ríkir í samfélaginu í kringum félagið og kynnast yngsta liðinu sem spilar í úrvalsdeildinni.
Áhorfendur og hlustendur fá loksins að vita hvaða liði Gugga heldur með í ár, og þá komast Filo og Gugga að óvæntum ríg á milli Álftaness og annars liðs í deildinni sem er alls ekki það lið sem fólk myndi halda í fyrstu.
Það fylgir því ákveðinn svalleiki á körfuboltavellinum að geta hitt körfu alveg frá miðju, og í þættinum reynir á hversu góðir strákarnir í Álftanesliðinu eru í raun og veru í þeirri kúnst. Þátturinn er tilvalin skemmtun til að skella í gang og tilvalið að kíkja á hann núna strax eftir leikinn hjá stelpunum.



