HomeFréttirFIBA uppfærir styrkleikalista

FIBA uppfærir styrkleikalista

 

Styrkleikalistar FIBA hafa verið uppfærðir eftir að síðustu álfukeppnunum lauk síðustu helgi. Bandaríkjamenn tróna á toppnum í öllum flokkum.

 

Ísland er í fyrsta sinn á heimslistanum og situr þar í 84. sæti. Ísland er þar með yfir tveimur öðrum Evrópulöndum, Hollandi og Portúgal, sem og öllum þeim sem ekki náðu inn á listanum eins og t.d. nágrannar okkar í Danmörku. Bandaríkin sitja sem fastast í efsta sætinu á öllum listum þ.e. karla, kvenna, drengja og stúlkna.

Eurobasket skilaði bæði Litháum og Serbum upp um eitt sæti á meðan Þjóðverjar lækkuðu sig um tvö. Áhugavert verður að sjá hvernig Þýskaland mun tækla komandi tíma án Dirk Nowitzki í leiðtogahlutverkinu. 

 

Fréttir
- Auglýsing -