spot_img
HomeFréttirFIBA dómarar fá haustverkefni

FIBA dómarar fá haustverkefni

8:30

{mosimage}

Sigmundur dæmir tvo leiki í A deild karla 

Eins og greint var frá á kki.is fyrir skömmu fengu íslensku FIBA dómararnir verkefni í Evrópu í sumar. Nú hefur þeim svo verið úthlutað verkefnum í haust í Evrópukeppnum landsliða karla og kvenna.

Kristinn Óskarsson fer til Bretlands 27. ágúst og dæmir leik Breta og Ísrael í A deild kvenna. Meðdómari hans verður Daninn Rune Larsen.

Björgvin Rúnarsson fékk leik Breta og Tékka í A deild karla þann 6. september en varð því miður að gefa verkefnið frá sér og úthlutaði FIBA því þá til Sigmundar Más Herbertssonar. Meðdómarar hans verða þeir Anibal Castano frá Frakklandi og Vicente Bulto frá Spáni.

Að lokum fer Sigmundur Már til Finnlands 13. september og dæmir leik heimamanna við Ítali í A deild karla. Meðdómarar verða þeir Juan Carlos Garcia Gonzalez frá Spáni og Oscars Lucis frá Lettlandi.

Sigmundur fer því og hittir fyrir báða nýliða A deildarinnar en Finna og Bretar unnu B deildina síðasta haust. Það verður líka fróðlegt að sjá hvort Chicago Bulls leikmaðurinn Luol Deng verður með Bretum en hann átti stóran þátt í að þeir komust upp úr B deildinni.

[email protected]

Mynd: [email protected]

 

Fréttir
- Auglýsing -