Leikmaður Njarðvíkur og undir 18 ára liðs Íslands Patrik Joe Birmingham hefur verið valinn til að taka þátt í Basketball Without Borders sem fara fram í Manchester á Englandi þessa dagana.
Verkefnið er samstarf FIBA og NBA, en þar er reynt að finna efnilega leikmenn og þeim hjálpað að þróa sig áfram. Sex sinnum á ári er þetta haldið um allan heim og eru búðirnar sem Patrik tekur þátt í númer 78 síðan þær voru fyrst haldnar 2001.
Auk æfinga og keppni eru þátttakendur einnig þjálfaðir í forystuhæfileikum og lífsleikni en þær hófust í gær og lýkur 15. ágúst

Samkvæmt tilkynningu KKÍ mun Patrik vera sjötti íslenski leikmaðurinn sem tekur þátt í verkefninu. Fyrstur var Brynjar Þór Björnsson árið 2005 og síðast fór Hákon Örn Hjálmarsson árið 2016.
Þátttakendur frá Íslandi í BWB:
2005 – Brynjar Þór Björnsson, KR
2006 – Hjörtur Hrafn Einarsson, Njarðvík
2008 – Haukur Helgi Pálsson, Fjölni
2010 – Oddur Birnir Pétursson, Njarðvík
2016 – Hákon Örn Hjálmarsson, ÍR
2025 – Patrik Joe Birmingham, Njarðvík



