HomeBónus deildinBónus deild karlaFerlega svekktur hverning við köstuðum þessu frá okku

Ferlega svekktur hverning við köstuðum þessu frá okku

Njarðvíkingar máttu þola 84–73 tap gegn KR á Meistaravöllum í Bónus deild karla í kvöld. Gestirnir af Suðurnesjum leiddu nær allan fyrri hálfleikinn, mest með tólf stigum, og voru yfir fyrir lokaleikhlutann en misstu algjörlega tökin á leiknum þegar KR skoraði 22 stig gegn aðeins 6 stigum Njarðvíkur í fjórða leikhluta. Makye Richard var stigahæstur Njarðvíkinga með 23 stig og Aleksa Ilic skilaði 20 stigum og tíu fráköstum, en liðið situr eftir án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, mætti í viðtal strax að leik loknum og ræddi við blaðamann um gang leiksins.

Viðtalið við Rúnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -