Srdjan Stojanovic hefur skrifað undir tveggja ára samning við Körfuknattleiksdeild Sindra.
Srdjan kemur til Sindra frá ÍA, en þar sigraði hann fyrstu deildina á síðustu leiktíð. Sigur hans með ÍA í fyrra var í þriðja skiptið sem hann vann deildina, en áður hafði hann unnið hana með Fjölni og Álftanesi.
Á síðasta tímabili var Srdjan með 16 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar að meðaltali í leik í sterku liði ÍA.