HomeNeðri deildir1. deild karlaFer Breiðablik eða Sindri í Bónus deildina með Hetti?

Fer Breiðablik eða Sindri í Bónus deildina með Hetti?

Fyrsti leikurinn í úrslitaeinvígi fyrstu deildar karla fer fram í Ice Lagoon höllinni laugardaginn 2. maí klukkan 19:15. Þar mætast Sindri og Breiðablik í baráttu um sæti í Bónus deildinni á næsta tímabili, en Höttur hefur þegar tryggt sér efsta sætið og beina ferð aftur upp. Einvígið er spilað þannig að þrjá sigra þarf til að tryggja sér sæti meðal þeirra bestu.

Bæði lið koma vel stemmd inn í úrslitin eftir öfluga frammistöðu í undanúrslitum. Breiðablik vann sinn stað í úrslitunum með sannfærandi 3-0 sigri á KV, á meðan Sindri hafði betur gegn Selfossi í fjórum leikjum og kláraði sitt einvígi 3-1. Búast má við hörkuleik þegar þessi tvö lið mætast í fyrstu rimmu kvöldsins á Höfn.

Leikur kvöldsins

Fyrsta deild karla – Úrslit

Sindri Breiðablik – kl. 19:15

Fréttir
- Auglýsing -