Dregið var í 8 liða úrslitum VÍS bikarsins í hádeginu í dag, en leikið verður á nýju ári.
Átta liða úrslit kvenna munu fara fram 10.-11. janúar og karla 11.-12. janúar.
Þetta eru liðin sem mætast í 8 liða úrslitum VÍS bikarkeppninnar
Karfan var á svæðinu og ræddi við Baldur Ragnarsson þjálfara Stjörnunnar, en hans menn munu taka á móti Grindavík í átta liða úrslitunum.



