Grindavík sigraði Tindastól með 85 stigum gegn 80 í fyrsta leik úrslitaeinvígis Bónus deildar karla sem fram fór í HS Orku-höllinni að viðstöddum 1200 áhorfendum.
Heimamenn í Grindavík leiddu með 15 stigum í hálfleik, 49-34, en Tindastóll svaraði af krafti í þriðja leikhluta og gerði leikinn spennandi allt til loka. Ólafur Ólafsson var stigahæstur hjá Grindavík með 21 stig en hjá Tindastóli var Taiwo Hassan Badmus atkvæðamestur með 22 stig.
Karfan spjallaði við Kristófer Breka Gylfason leikmann Grindavíkur eftir leik í HS Orku höllinni.




