spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaFeðgarnir taka við Breiðablik

Feðgarnir taka við Breiðablik

Breiðablik hefur samið við feðgana Hrafn Kristjánsson og Mikael Mána Hrafnsson fyrir komandi tímabil í fyrstu deild karla, en liðið féll á yfirstandandi tímabili úr Subway deildinni. Staðfestir Breiðablik þetta á samfélagsmiðlum fyrr í dag.

Hrafn hefur mikið þjálfað í gegnum tíðina, Álftanes, Stjörnuna, KR, KFÍ, Þór og þá var hann með Breiðablik áður, en sem þjálfari hefur hann unnið alla titla sem í boði eru á Íslandi. Fyrir yfirstandandi leiktíð tók hann við 11. og 12. karla hjá Breiðablik.

Mikael Máni sonur hans er uppalinn Bliki sem hefur æft og leikið upp alla yngri flokka félagsins, en á síðustu árum hefur hann tekið að sér verkefni í þjálfun hjá Blikum.

Aðspurður segir Hrafn þá feðga spennta fyrir samstarfinu og komandi tímabili: „Það má segja að þetta skref okkar sé eðlilegt framhald á okkar ferðalagi saman í körfuboltanum. Þetta samstarf er í raun fyrir löngu hafið, Mikael Máni var byrjaður að aðstoða mig, veita mér ráð og styðja við mig sem þjálfara fyrir nokkrum árum síðan. Við lærum af hvorum öðrum daglega sem er mjög gefandi fyrir okkur báða. Við njótum góðs af starfi Ívars Ásgrímssonar síðustu tímabil með unga leikmenn félagsins sem ættu að vera spenntir fyrir komandi tímabili í 1. deild.“

Mikael Máni sagðist spenntur fyrir verkefninu og komandi tímabili: „Ég er fyrst og fremst þakklátur og spenntur fyrir þessu næsta skrefi mínu sem þjálfara. Ég á Ívari Ásgrímssyni mikið að þakka fyrir þá trú sem hann hafði á mér fyrir síðasta tímabil og fyrir það sem ég hef lært af honum síðustu ár. Á næsta ári leggjum við upp með tvíþætt markmið. Það er ljóst að Breiðablik mun mæta í hvern einasta leik til að sigra en á sama tíma viljum við gefa okkar ungu leikmönnum rými og tækifæri til að reyna sig á vellinum og þróa sig áfram í Smáranum”.

Fréttir
- Auglýsing -