spot_img
HomeFréttirFeðgar léku saman í Höllinni

Feðgar léku saman í Höllinni

 
Feðgarnir Björn Ægir Hjörleifsson og Vilhjálmur Atli Björnsson voru í liði Þórs úr Þorlákshöfn um síðustu helgi þegar Þórsarar mættu í Laugardalshöll og höfðu öruggan sigur gegn Ármenningum í 1. deild karla.
Sá eldri, Björn Ægir, lék í tæpar 5 mínútur í leiknum og skoraði 2 stig í leiknum en Vilhjálmur Atli lék í tæpar 4 mínútur en náði ekki að skora.
 
Þessu vill bregða við annað veifið, feðgarnir Kristinn Óskarsson og Ísak Ernir Kristinsson hafa þegar dæmt leiki saman sem dómarapar og þá mættust feðgarnir Tómas Holton og Tómas Tómasson í bikarleik Vals B og Fjölnis á dögunum. Þá hafa feðgarnir Kári Maríasson og Axel Kárason nokkrum sinnum leikið saman og mættu t.d. saman í leik þar sem eldri bróðir Axels, Arnar, var í liði andstæðinganna.
 
Mynd/ Hjalti Vignisson: Björn Ægir Hjörleifsson skoraði 2 stig í sigurleik Þórs gegn Ármanni.
Fréttir
- Auglýsing -