Haukar og Keflavík háðu sinn þriðja bardaga í undanúrslitum Bónus deildar kvenna í körfubolta í Ólafssal á Ásvöllum í í Hafnarfirði kvöld. Leiknum lauk með nokkuð sannfærandi sigri Hauka í skemmtilegum baráttuleik; heimastúlkur unnu með 86 stigum gegn 70 og eru nú 2-1 yfir í einvíginu,en þrjá sigra þarf til að komast í lokaúrslitin.
“Mér fannst við bæta leik okkar svolítið mikið frá síðasta leik og náðum mörgum góðum stoppum og leikum í raun bæði vel í vörn og sókn” sagði Þóra Kristín Jónsdóttir leikmaður Hauka eftir flottan sigur gegn Keflavík. “Við spiluðum hraðar og af meiri ákefð og krafti en í síðasta leik og vorum líka duglegar að finna stóru stelpurnar okkar inni í teig og það kom svo margt gott út úr því – stig, fráköst og opin skot fyrir utan og það virkaði mjög vel.” Þóra sagði að það hefði verið “varnarleikurinn sem skildi liðin að í þessum leik – en hann var mun betri nú en í síðasta leik.” Þóra segir að Haukaliðið stefni að sjálfsögðu að því að klára einvígið í næsta leik en sagði það einnig að alltaf sé erfitt að sækja sigur suður með sjó en að hún hefði fulla trú á sínu liði: “Leikur okkar í kvöld gefur góð fyrirheit og við erum fullar sjálfstrausts, en við sáum það klárlega hversu sterkar þær geta verið í öðrum leiknum. Reykjanesbrautin getur verið erfið þannig að við þurfum bara að finna eitthvað mojo til að fara yfir brautina og ná í sigur” sagði Þóra í samtali við Körfuna eftir leik.






