spot_img
HomeFréttirFanney og Jóhanna áfram í Borgarnesi

Fanney og Jóhanna áfram í Borgarnesi

Borgnesingar munu halda lykilmönnum sínum fyrir næsta tímabil í Dominos deild kvenna en þær Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Fanney Lind Thomas hafa staðfest það við Karfan.is að þær muni leika með Skallagrím á komandi tímabili. 

 

Skallagrímur sem kom upp sem nýliðar í Dominos deild kvenna fyrir ári síðan átti mjög gott tímabil. Lék í úrslitum bikarkeppninnar og datt úr leik í undanúrslitum Dominos deildarinnar gegn Keflavík sem varð svo Íslandsmeistari. 

 

Jóhanna Björk á að baki tíu landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur einnig leikið með Hamri, Haukum, Breiðablik og KR áður en hún kom til liðs við Skallagrím fyrir ári síðan. Hún lék 33 leiki fyrir Skallagrím á síðustu leiktíð og var með 8 stig og 7,7 fráköst að meðaltali í leik og var í byrjunarliði liðsins í 94% leikja liðsins. 

 

Fanney Lind Thomas kom til Skallagríms á miðju síðasta tímabili frá Þór Ak og lék 24 leiki með liðinu. Hún var með 8,4 stig og 4 fráköst að meðaltali í leik fyrir liðið og reyndist mjög mikilvæg á lokasprettinum. Í samtali við Karfan.is sagði Fanney að hún hefði verið búin að ákveða að taka frí frá körfuboltanum til að setja dóttur sína í fyrsta sæti. Stjórn Skallagríms hafi sýnt henni liðleika og aðstoð svo hún hafi nú ákveðið að láta á það reyna að leika með Skallagrím áfram. 

 

Á dögunum réð félagið Richi Gonzalez til að þjálfa liðið auk þess sem liðið heldur svipuðum kjarna og á síðasta tímabili. Auk þess samdi stigahæsti leikmaður Dominos deildarinnar Carmen Tyson-Thomas við liðið á dögunum, Bríet Lilja Sigurðardóttir kom til liðsins frá Tindastól og Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir sneri aftur í Borgarnes frá Fjölni. 

 

Skallagrímur hefur leik í Dominos deild kvenna þann 4. október næstkomandi er liðið heimsækir Njarðvík í Ljónagryfjunni. 

 

 

Fréttir
- Auglýsing -