HomeFréttirFannar: Markmiðið síðan í september að vinna alla titla

Fannar: Markmiðið síðan í september að vinna alla titla

 
Stóru strákarnir hjá KR sáu um lokahnykkinn þegar Vesturbæingar lögðu Tindastól í undanúrslitum Poweradebikarsins í dag. Þeir Fannar Ólafsson, Jón Orri Kristjánsson og Finnur Magnússon fóru þá mikinn. Karfan.is ræddi við Fannar eftir leik sem sagði að um leið og bakverðirnir færu að gefa á stóru mennina þá færu hlutirnir loksins að gerast.
,,Þegar Fannar, Finnur og Jón Orri fara að fá boltann þá gerist eitthvað gott,” sagði Fannar léttur í bragði. ,,Við erum með miklu meiri breidd en Tindastóll og getum hlaupið allan leikinn á sama hraða og jafnvel hleypt leiknum meira upp í lokin en þeir. Mér fannst t.d. stóru mennirnir hjá þeim vera orðnir þreyttir undir lokin. Um leið og þú er með svona ,,deadly” stóra menn og Hreggvið í þokkabót þá erum við góðir,” sagði Fannar en við gátum ekki rætt við miðherjann án þess að spyrja hann aðeins út í Marcus Walker, eru KR-ingar búnir að mæla tímann á þessum formúluhraða hjá kappanum?
 
,,Ég held að Marcus sé að hlaupa 100 metrana á 10,7 sekúndum og 400 metrana á 47 sekúndum, þetta er víst metið hans. Hann er mjög snöggur og frjálsíþróttasambandið ætti að kanna hvort ekki væri hægt að skella á hann Marcus Magnús Walker nafninu, eitt stykki ríkisborgararétt og setja hann í frjálsar fyrir Íslands hönd,” sagði Fannar en allt gaman tekur enda um síðir og ekki var hægt að halda áfram að ræða við miðherjann án þess að minnast á komandi bikarúrslit og vonbrigðin 2009.
 
,,Við förum í bikarúrslitin núna bara með það hugarfar að klára leikinn, markmiðið okkar síðan í september hefur verið að vinna allta titla sem eru í boði og þetta er fyrsti alvöru titillinn svo við í sjálfu sér pælum ekkert í leiknum 2009. Hugarfarið verður breytt frá síðasta bikarúrslitaleik, þá brenndum við okkur á ákveðnum hlutum og það verður ekki gert aftur,” sagði Fannar og áður en við slepptum honum í fögnuðinn með KR liðinu báðum við hann að rýna í undanúrslitaviðureign Hauka og KR sem fram fer á morgun að Ásvöllum.
 
,,Þetta er þrítrygging, 1-x-2, en eftir tvo tapleiki eins og hjá Grindavík getur verið erfitt að gíra sig upp í bikarinn. Annars skiptir það engu máli hverjum við mætum í Höllinni, við ætlum að klára þetta.”
 
Fréttir
- Auglýsing -