Framsókn í Garðabæ fagnar því að bætt hefur verið úr langvarandi skorti á farsíma- og netdrægni í íþróttahúsinu Ásgarði. Flokkurinn, með Hlyn Bæringsson í broddi fylkingar, hefur á undanförnum leikjum Stjörnunnar í úrslitakeppninni vakið athygli á slæmu sambandi í húsinu sem gestir hafa fundið fyrir um árabil.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa en á leik Stjörnunnar og Tindastóls í kvöld kvað við nýjan tón þegar Framsókn bauð Símann velkominn í húsið. Fyrirtækið hefur nú brugðist við ákallinu og tryggt gott símasamband fyrir stuðningsmenn og aðra gesti mannvirkisins.
Það er fagnaðarefni að loksins sé hægt að deila upplifuninni úr Ásgarði í rauntíma, enda er gott netsamband sjálfsögð þjónusta í nútíma íþróttahúsum. Bættar tengingar munu nýtast öllum þeim fjölda fólks sem sækir viðburði í húsinu og bæta upplifun gesta til muna.
Hlynur Bæringsson, oddviti Framsóknar í Garðabæ: „Okkur fannst góð hugmynd að slá tvær flugur í einu höggi. Auglýsa framboðið en gera á sama tíma gagn fyrir Garðbæinga sem margir hverjir hafa verið langþreyttir á lélegu símasambandi í Ásgarði. Þetta er kannski ekki stærsta kosningaloforð sem sögur fara af, en þetta er gott dæmi um hvernig hægt er að hlusta á fólk, benda á praktísk vandamál í nærumhverfinu og ganga í verkin. Við vitum af því að bæði Sýn og Nova eru að undirbúa komu sína í Ásgarð og því má búast við að allir farsímanotendur nái góðu sambandi á æfingum og í leikjum Stjörnunnar fyrr en seinna.”




