Fjórir leikir voru á dagskrá í Meistaradeildinni í kvöld þegar 1. umferð milliriðlana kláraðist. Barcelona var eina lið kvöldsins sem vann á heimavelli en spænsku meistararnir í Caja Laboral unnu landa sína í Unicaja Malaga.
Stórleikur kvöldsins var milli Barcelona og Maccabi Tel Aviv. Þrátt fyrir jafnar tölur allan leikinn voru það Börsungar sem voru með yfirhöndina allan tímann. Unnu þeir 10 stiga stigur 81-71 þar sem Juan Carlos Navarro var stigahæstur hjá Barcelona með 24 stig og Alan Anderson setti 16. Hjá Maccabi voru þeir Richard Hendrix og Doron Perkins með 13 stig hvor en Richard Hendrix var samherji Jóns Arnórs Stefánssonar hjá Granada á síðasta tímabili.
Caja Laboral vann Unicaja Malaga 71-76 og spillti fyrir fyrsta leik Chus Mateo sem var að stjórna Malaga í sínum fyrsta leik á tímabilinu. Mateo tók við liðinu í vikunni af goðsagnakennda þjálfaranum Aito Garcia Reneses sem stjórnaði Barcelona á sínum tíma sem varð níu sinnum spænskur meistari undir hans stjórn. Hann var einnig landsliðsþjálfari Spánverja á Ólympíuleikunum árið 2008.
Laboral vann að lokum í hörkuleik þar sem Marcelinho Huertas var stigahæstur hjá Spánarmeisturunum með 19 stig. Fyrir Malaga skoraði Joel Freeland manna mest eða 16 stig.
Fenerbache Ulker vann gríska liðið Olympiacos 70-84 í Aþenu. Króatinn Marko Tomas var stigahæstur hjá tyrkneska liðinu með 19 stig en hann tók einnig fjögur fráköst. Hjá Grikkjunum var ofur varamaðurinn Theodoras Papaloukas með 15 stig og fimm fráköst.
Union Olimpija vann Lottomatica Roma með aðeins einu stigi 63-64 í Róm. Kenny Gregory var með 19 stig fyrir Slóvenana og Svartfellingurinn Vladimir Dasic setti 18 stig fyrir Ítalina.
Mynd: Juan Carlos Navarro var stigahæstur í kvöld eins og svo oft áður




