HomeFréttirEuroleague: Helena og Good Angels unnu

Euroleague: Helena og Good Angels unnu

Fjórir leikir fóru fram í Euroleague í gærkvöldi.  Hér má finna úrslit og stigahæstu menn úr þeim leikjum.  Einnig spilaði Helena Sverissdóttir sinn annan leik í Euroleagu kvenna og vann þann leik með 18 stigum, 81-63.
Helena og liðsfélagar hennar í Good Angels Kosice spiluðu gegn Ruvas Ecopolis á heimavelli Good Angels.  Helena fann sig ekki í leiknum, spilaði 14 mínútur en náði ekki skora stig, hún gaf eina stoðsendingu og tók eitt frákast. Stigahæst í liði Good Angels var Danielle McGray með 20 stig en næstar voru Miljana Bojovic með 18 stig og Natalia Vieru með 15 stig.  Hjá Rivas var Asjha Jones stigahæst með 24 stig en næstar voru Elise Aguilar með 12 stig og Anna Cruz með 9 stig.  Næsti leikur Good Angels í euroleague verður 26. október næstkomandi gegn Gospic CO frá Króatíu.
 

Fjórir leikir fóru fram í Euroleague karla.

Unics 71-79 Montepachi Siena

Stigahæstirr í liði Unics voru  Henry Domercant 30stig/7fráköst Nathan Jaway 11 stig/9fráköst, Terrel Lyday með 9 stig.

Stigahæstir í liði Siena voru Bo McCalebb með 17 stigRimantas Kaukenas með 14 stig og David Andersen 13/5.

Tölfræðina úr leiknum má finna hér.

FB Ulker 66- 69 Caja Laboral

Stigahæstur í liði Fenerbache voru Omer Onan með 16 stig, James Gist og Roko Ukic með 10 stig hvor.  Í liði Caja voru það Mirza Teletovic með 23 stig/6fráköst, Milko Bjelica með 12 stig og Kevin Seraphin með 10 stig. 

Tölfræðina úr leiknum má finna hér.

Bennet Cantu 80-69 SLUC Nancy

Stigahæstir í liði Bennet voru Andrea Cinciarini með 15 stig, Vladimir Micov með 14 stig og Marko Scekic með 11 stig. 

Hjá Nancy var það Akin Akingbala með 20 stig en næstir voru það NBA leikmaðurinn Nicolas Batum með 13 stig/7fráköst/8stoð og Adrien Moerman með 13 stig.

Tölfræðina úr leiknum má finna hér.

Asseco Prokom 72-76 Galatasaray

Stigahæstir í liði Asseco voru Adam Hrycaniuk og Donatas Motiejunas með 15 stig hvor en næstur var Oliver Lafayette með 12 stig.

Hjá Galatasaray var það Jaka Lakovic með 21 stig en næstir voru Preston Shumper með 12 stig og Liksa Andric með 11 stig.  

Tölfræðina úr leiknum má finna hér.

Gísli Ólafsson

Fréttir
- Auglýsing -