Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mátti játa sig sigrað gegn ógnarsterku liði Tyrkja í Laugardalshöllinni í kvöld þar sem lokatölur urðu 73–110. Tyrkneska liðið lagði línurnar strax í upphafi og fór með öruggt forskot inn í hálfleikinn sem strákunum okkar tókst ekki að brúa. Styrmir Snær Þrastarson átti góða innkomu af bekknum og var meðal stigahæstu manna Íslands með 10 stig en Kristinn Pálsson og Martin Hermannsson skoruðu 11 stig hvor.
Styrmir Snær mætti í viðtal í Laugardalshöllinni að leik loknum þar sem hann ræddi leik kvöldsins og fór yfir gang mála. Viðtalið við Styrmi má sjá í spilaranum hér að neðan.




