spot_img
HomeFréttirErfiður lokaleikhluti Íslandi að falli gegn sterku liði Króatíu

Erfiður lokaleikhluti Íslandi að falli gegn sterku liði Króatíu

Undir 16 ára drengjalið Íslands er komið til Skopje í Makedóníu þar sem þeir munu leika á Evrópumóti næstu daga.

Ísland og Króatía eru með Dan­mörku, Kósóvó, Hollandi og Úkraínu í riðil.

Fyrsta leik mótsins tapaði Ísland ídag fyrir sterku liði Króatíu, 91-79, í leik sem var í járnum allt fram í fjórða leikhluta.

Stigahæstir fyrir Ísland í dag voru Steinar Rafnarson og Daníel Snorrason með 17 stig hvor. Þeim næstur var Benóní Andrason með 15 stig.

Tölfræði leiks

Næsti leikur Íslands á mótinu er gegn Danmörku á morgun.

Steinar og Almar eftir leik
Baldur eftir leik
Fréttir
- Auglýsing -