spot_img
HomeÚti í heimiEuroleagueEr Martin á leiðinni til Tyrklands?

Er Martin á leiðinni til Tyrklands?

Martin Hermannsson er sagður líklegur til þess að yfirgefa Alba Berlin í Þýskalandi nú í sumar samkvæmt vefmiðlinum Basketnews.

Martin á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið, en nokkrar breytingar hafa verið hjá því þar sem þeir munu ekki leika í EuroLeague á næstu leiktíð. Annað lið myndi því þurfa kaupa Martin af þýska félaginu, en samkvæmt heimildum er þá horft til þeirra liða sem munu leika í EuroLeague á næstu leiktíð.

Samkvæmt blaðamanninum Andrea Calzoni mun EuroLeague lið Anadolu Efes frá Tyrklandi vera undirbúa tilboð í Martin. Anadolu Efes er eitt af sterkari liðum Evrópu, enduðu í 6. sæti EuroLeague deildarinnar. Þeir hafa í tvö skipti unnið EuroLeague, síðast 2022 og þá hafa þeir í 14 skipti orðið tyrkneskir meistarar, síðast 2023.

Fréttir
- Auglýsing -