spot_img
HomeFréttirEnn þéttist hópurinn hjá Þór: Atli og Bjarni mættir til leiks

Enn þéttist hópurinn hjá Þór: Atli og Bjarni mættir til leiks

Bjarni Konráð Árnason er komin á fullt aftur eftir árs hlé og Atli Rafn Hreinsson er orðinn liðsmaður Þórs á Akureyri í 1. deild karla. www.thorsport.is greinir frá. 

Bjarni Konráð Árnason sem lagði skóna á hilluna fyrir réttu ári síðan hefur nú ákveðið að taka fram skóna á nýjan leik og komin á fullt með körfuboltaliði Þórs. Bjarni minnti eftirminnilega á sig í síðasta leik þar sem hann fór t.d. á kostum í þriðja leikhluta og skoraði 3 þriggja stiga körfur. Þá hefur liðinu einnig borist góður liðsstyrkur þar sem Atli Rafn Hreinsson sem lék með Snæfelli er nú farinn að æfa með Þór og er orðinn löglegur. 
 
Viðtal við Atla og Bjarna á heimasíðu Þórsara
Fréttir
- Auglýsing -