Lokaumferðin í Bónus deild karla er loksins runnin upp og þrátt fyrir að veðurguðirnir hafi reynt sitt besta til að skemma partíið með aftakaveðri í dag, virðist sem körfuboltinn muni hafa betur. Það er ekkert nýtt að íslenskt marsveður reyni á þolrifin, en eins og staðan er núna hefur engum leik verið frestað. Samkvæmt heimildum Körfunnar er útlit fyrir að það lægi með deginum og lægðin dragi sig í hlé, sem eru kærkomnar fréttir fyrir stuðningsmenn sem ætla að fjölmenna á pallana.
Það sem vekur kannski mesta athygli og róar taugar er að það lið sem á lengsta ferðalagið fyrir höndum í kvöld – Tindastóll, sem ferðast alla leið frá Sauðárkróki til að mæta KR í Vesturbænum – er samkvæmt heimildum komið á áfangastað heilu og höldnu.
Stóra spurningin varðandi veðrið og færðina snýr þó sérstaklega að leikjum Ármanns gegn ÍA uppi á Akranesi og viðureign Grindavíkur og Þórs í Grindavík, þar sem Þórsarar munu berjast fyrir lífi sínu í deildinni, en Reykjanesbrautin, Suðurstrandarvegur og leiðin undir Akrafjall geta verið erfiðar viðureignar í svona veðri.
Leikir kvöldsins í Bónus deild karla (allir kl. 19:15):
- ÍA – Ármann (AvAir höllin, Akranesi)
- Grindavík – Þór Þ. (HS Orku-höllin, Grindavík)
- KR – Tindastóll (Meistaravellir, Vesturbæ)
- Njarðvík – Keflavík (IceMar-höllin, Reykjanesbær)
- Valur – ÍR (N1-höllin, Hlíðarenda)
- Álftanes – Stjarnan (Kaldalónshöllin, Garðabæ)





