Keflavík heldur áfram að elta efstu liðin í Dominos deild kvenna eftir sigur á Stjörnuna á heimavelli. Leikið var í 25. umferð og eru nú einungis þrjár umferðir eftir í deildinni.
Stjarnan var sterkara liðið framan af leik og áttu mjög sterkan fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 34-46 og virtust Garðbæingar ætla sér að sækja sigur til Keflavíkur.
Keflvíkingar voru ekki á sama máli og áttu ansi hreint góðan þriðja leikhluta. Munurinn var mestur tólf stig í stöðunni 52-40 um miðjan þriðja leikhluta. Þá setti Keflavík í gírinn og náði 14-0 áhlaupi, þar með voru heimakonur allt í einu komnar yfir.
Við tók æsispennandi fjórði leikhluti þar sem sigurinn gat dottið báðu megin. Að lokum voru það Keflvíkingar sem voru sterkari og unnu 81-78 þar sem Keflavík setti stóru skotin í lokin en Stjarnan virtist bensínlaus á lokasprettinum.
Sigurinn þýðir að Keflavík jafnar Val að stigum í 2-3. sæti deildarinnar en Valsarar hafa yfirhöndina í innbyrðisviðureign liðanna. Stjarnan aftur á móti missti fjórða sætið til Skallagríms með sigri í kvöld og eru að fjarlægast úrslitakeppnina. Stjarnan hefur einungis unnið tvo af síðustu sjö leikjum í deildinni.
Keflavík-Stjarnan 81-78 (21-22, 13-24, 22-13, 25-19)
Keflavík: Brittanny Dinkins 31/8 fráköst/10 sto?sendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 24/10 fráköst, Erna Hákonardóttir 12, Birna Valger?ur Benónýsdóttir 6, Anna Ingunn Svansdóttir 6, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 2/8 fráköst, Irena Sól Jónsdóttir 0, Katla Rún Gar?arsdóttir 0, Elsa Albertsdóttir 0, Kamilla Sól Viktorsdóttir 0, Eva María Lú?víksdóttir 0, Svanhvít Ósk Snorradóttir 0.
Stjarnan: Danielle Victoria Rodriguez 30/8 fráköst/15 sto?sendingar/5 stolnir, Jenný Har?ardóttir 12/4 fráköst, Bryndís Hanna Hreinsdóttir 12, María Lind Sigur?ardóttir 12/6 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 8/6 fráköst, Valdís Ósk Óladóttir 2, Aldís Erna Pálsdóttir 2, Eyrún Embla Jónsdóttir 0, Sunna Margrét Eyjólfsdóttir 0, Kristín Fjóla Reynisdóttir 0, Linda Marín Kristjánsdóttir 0.




