HomeNeðri deildir1. deild kvennaEmma Karólína valin sú besta í fyrstu deildinni ,,Ákvað að stíga aðeins...

Emma Karólína valin sú besta í fyrstu deildinni ,,Ákvað að stíga aðeins upp”

Hin 17 ára gamla Emma Karólína Snæbjarnardóttir var í dag valin besti leikmaður fyrstu deildar kvenna. Þetta er í fyrsta skipti sem hún hlýtur þessi verðlaun, en hún átti stórkostlegt tímabil með liði Þórs Akureyrar. Emma skilaði frábærum tölum í vetur með 19 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Verðlaunahafar á lokahófi KKÍ

Þór endaði í 2. sæti deildarinnar og stefnir nú ótrautt á úrslitakeppnina þar sem barist er um laust sæti í Bónus deildinni.

Karfan spjallaði við Emmu rétt eftir að hún tók við verðlaununum eftirsóttu.



Fréttir
- Auglýsing -