Þegar KR-ingar þurftu á upplyftingu að halda mætti Emil Þór Jóhansson með tvo risavaxna þrista fyrir sína menn sem héldu Haukum fjarri þegar KR lagði Hafnfirðinga í Iceland Express deildinni í kvöld. Haukar féllu við tapið en KR treysti stöðu sína í 2. sæti deildarinnar.
,,Nú erum við komnir í ,,playoff-mode" og á fullu við að gera okkur klára fyrir úrslitakeppnina og við ætlum okkur að halda þessu öðru sæti. Það var styrkur að klára þetta en við höfum ekki spilað á móti 3-2 svæðisvörninni í allan vetur og vorum svona dálítið stirðir á móti henni en skotin duttu heldur betur á réttum tíma," sagði Emil og kvaðst spenntur fyrir lokaumferðinni þar sem KR mætir ÍR en KR hefur haft heljartak á Reykjavíkurrimmunni þetta tímabilið.
,,Við mætum brjálaðir í ÍR-leikinn og gerum allt til að tryggja 2. sætið en það hentar okkur vel að spila á móti þeim og í þessum leikjum hafa stóru mennirnir okkar blómstrað," sagði Emil en hvað sér hann gerast á næstunni í deildinni? ,,Maður sér voðalega lítið út úr þessum hrærigraut, liðin eru að spila jafna leiki en það kæmi mér ekki á óvart ef það yrðu litlar breytingar á töflunni út deildarkeppnina," sagði Emil sem kveðst nálgast sitt besta form óðfluga en um tveir mánuðir eru síðan hann var að glíma við meiðsli í kálfa.
,,Ég er allur að koma til og verð í toppstandi í úrslitakeppninni."




