HomeFréttirEmil ,,endasprettur" enn að verki - Eiríkur heiðraður í Hellinum

Emil ,,endasprettur” enn að verki – Eiríkur heiðraður í Hellinum

Fyrir leik ÍR og KR í kvöld var gamla brýnið Eiríkur Önundarson heiðraður fyrir framlag sitt til ÍR sl. 20 ár. Treyja hans með nafni og númeri var hengd upp í rjáfur Seljaskóla honum til heiðurs þar sem hún mun hanga um ókomna framtíð. Virkilega vel að verki staðið hjá ÍR-ingum. 
 
 
Leikurinn sjálfur var jafn og spennandi en KR hafði þó alltaf undirtökin í leiknum og leiddu að jafnaði með 6 stiga mun eða svo. Í fyrri hálfleik spiluðu bæði lið stífa vörn, einkum ÍR-ingar en gestirnir úr Vesturbæ skoruðu t.d. sín fyrstu stig í öðrum leikhluta þegar 6 mínútur voru liðnar. Í hálfleik voru KR-ingar yfir 46-37 og var Finnur Atli atkvæðamestur í liði gestanna. Hjá heimamönnum var Robert Jarvis fremstur í flokki jafningja. 
 
Liðin skiptust á körfum í byrjun síðari hálfleiks og virtust KR-ingar ætla að síga fram úr um miðbik þriðja leikhluta þegar staðan var 59-46 fyrir KR-liðið,en þá hófst flugeldasýning í boði Roberts nokkurs Jarvis og var munur liðanna einungis tvö stig eða 61-59 KR í vil.
 
Um miðjan fjórða leikhluta náðu ÍR-ingar yfirhöndinni í leiknum með mikilli eljusemi og virtust ætla að bera sigur úr býtum enda stemningin þeirra megin. KR-ingar bitu hinsvegar frá sér og náðu aftur yfirhöndinni í leiknum með Emil Þór Jóhannesson í fararbroddi. Fór að lokum svo að KR innbyrti sigur í leiknum 82-88.
 
ÍR hefur því lokið keppni þetta tímabilið en KR heldur nú inn í úrslitakeppnina og mætir þar Tindastól í fyrstu umferð.
 
Ljósmynd/ [email protected] – Eiríkur Öndunarson fékk höfðinglega meðferð í Hellinum í kvöld.

Umfjöllun/ VF og SC 
Fréttir
- Auglýsing -