HomeFréttirEmil Barja: Þetta er grautfúlt

Emil Barja: Þetta er grautfúlt

Emil Barja gerði sjö stig og tók sex fráköst þegar Haukar töpuðu naumlega í kvöld gegn KR og féllu fyrir vikið í 1. deild karla. Ljóst er að Haukar ljúka keppni í 11. sæti deildarinnar þó enn sé ein umferð eftir af deildarkeppninni og sagði Emil sárt að klára ekki marga af þessum leikjum sem voru jafnir eins og sá sem þeir spiluðu í kvöld.
,,Það eru mörg ,,hvað ef" í þessu og ég bara veit ekki hvað ég á að segja, þetta er grautfúlt," sagði Emil brúnaþungur í DHL-höllinni. ,,Svæðið klikkar hjá okkur í lokin, það opnaðist allt í horninu og KR fann lausninar við vörninni okkar," sagði Emil en mikið hefur gengið á hjá Haukum þessa leiktíðina.
 
,,Við vorum með einhverja sex erlenda leikmenn í það heila, meiðsli eins og hjá Holmes í kvöld voru að trufla okkur og við fáum líka nýjan þjálfara á miðju tímabili. Þetta var svona í molum hjá okkur á tímabili en við lékum vel hér í nokkrum leikjum, vinnum Keflavík og næstum því Grindavík og vorum óheppnir að klúðra þessu í kvöld," sagði Emil en þeir fara yfir tuginn leikirnir sem Haukar töpuðu með 10 stiga mun eða minna.
 
,,Það er mjög sárt að ná ekki að klára þessa leiki en við erum með ungt lið og mögulega hefur reynsluleysi eitthvað með þetta að gera. Við förum samt á fullu í síðasta leikinn og gefum ekki neitt þó við séum fallnir," sagði Emil en Haukar mæta Þór Þorlákshöfn í lokaumferð deildarinnar.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -