Þór Þorlákshöfn hefur framlengt samninginn við fyrirliða sinn, Emil Karel Einarsson, fyrir komandi tímabil.
Þá snýr heimamaðurinn Halldór Garðar Hermannsson aftur í raðir félagsins frá Keflavík, sem eru mikil gleðitíðindi fyrir klúbbinn.

Ljóst er að mikill hugur er í Þórsurum eftir að liðið féll úr Bónusdeildinni á síðustu leiktíð. Með þessum stóru undirskriftum sendir liðið skýr skilaboð um að stefnan sé sett rakleiðis aftur upp í efstu deild.




