Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?
Við fengum leikmann Keflavíkur, Emelíu Ósk Gunnarsdóttur, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.
Keflavík heimsækir granna sína í Njarðvík kl. 16:30 í 5. umferð Dominos deildarinnar og er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Emelía:
Rise – Katy Perry
Þetta er eitt af núverandi uppáhalds.
Starboy – The weeknd
The weeknd klikkar seint, þetta er uppáhalds lagið mitt með honum í augnablikinu.
Pass Dat – Jeremih
Þetta lag var vinsælt hjá okkur liðinu eftir að Dj spilaði það einu sinni í upphitun hjá okkur.
Fire – Gavin DeGraw
Lagið var í highlights videói okkar í U-18 á EM.
Black Skinhead – Kanye West
Þetta lag hefur alltaf komið mér í gírinn og þá sérstaklega til að pakka einhverjum í vörn.




