Stjarnan varð bikarmeistari í 9. flokki stúlkna í kvöld eftir sigur gegn Val í æsispennandi tvíframlengdum leik, 68-65.
Leikurinn var fyrri tveggja úrslitaleikja í kvöld, en í þeim seinni eigast einmitt við aftur Valur og Stjarnan, nema í 10. flokki drengja.
Karfan spjallaði við Emblu Hrönn Amlin Sigurðardóttur eftir að leik lauk í Smáranum. Embla var valin besti leikmaður bikarúrslitanna, en á tæpum 36 mínútum spiluðum skilaði hún 20 stigum, 13 fráköstum, 5 stoðsendingum, stolnum bolta og 2 vörðum skotum.




