Anwil Wloclawek styrkti stöðu sína í sjöunda sæti pólsku úrvalsdeildarinnar í dag með öruggum sigri á botnliði Krosno þar sem lokatölur urðu 101:87.
Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson átti flotta frammistöðu í leiknum en hann skoraði 14 stig, gaf níu stoðsendingar og tók tvö frákast á þeim 30 mínútum sem hann lék á vellinum.




