HomeÚti í heimiEvrópaElvar Már frábær í Póllandi

Elvar Már frábær í Póllandi

Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik fyrir Anwil Wloclawek í pólsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið mætti Legia Varsjá. Þrátt fyrir að Elvar hafi farið fyrir sínum mönnum með nítján stigum, sjö stoðsendingum og tveimur fráköstum þá dugði sú frammistaða ekki til og varð niðurstaðan átta stiga tap, 83:91.

Eftir þessi úrslit og tuttugu og eina spilaða umferð situr Anwil Wloclawek í sjötta sæti deildarinnar með þrjátíu og tvö stig. Legia Varsjá styrkti hins vegar stöðu sína í efri hluta töflunnar og situr nú í þriðja sæti með þrjátíu og fimm stig eftir sigurinn gegn Elvari og félögum.

Fréttir
- Auglýsing -