Eins og þegar hefur komið fram mun Lazar Trifunovic ekki leika meira með Keflvíkingum þetta tímabilið sökum meiðsla. Lazar var klárlega á meðal bestu leikmanna deildarinnar en Guðjón Skúlason þjálfari Keflavíkur sagði í samtali við Karfan.is í dag að leikmaðurinn hefði talið meiðslin vera meiri en svo að hann gæti farið út í 100% átök.
,,Það er leiðinlegt að sjá á eftir Laz og hann taldi meiðslin vera meiri en svo að hann gæti farið í 100% átök fyrir félagið og því skildu leiðir,” sagði Guðjón en Lazar meiddist þann 3. janúar síðastliðinn og hefur ekki getað beitt sér að fullu síðan.
,,Ekkert er komið á hreint með arftaka hans en við erum ekki að örvænta neitt, við erum með fínan hóp sem vinnur vel saman,” sagði Guðjón en Keflvíkingar eru í 3. sæti deildarinnar og hafa unnið þrjá deildarleiki í röð.
Lazar lék 7 deildarleiki með Keflavík og var með 25,0 stig að meðaltali í leik, 11, 1 frákst og 1,9 stoðsendingu.




