HomeFréttirEkki í neitt flæði í þessum leik

Ekki í neitt flæði í þessum leik

Íslenska liðið átti erfitt uppdráttar gegn firnasterku liði Tyrklands í Laugardalshöllinni í kvöld þar sem lokatölur urðu 73–110. Tyrkir mættu gríðarlega ákveðnir til leiks, leiddu með 23 stigum í hálfleik og gáfu aldrei færi á sér. Hjá Íslandi voru Kristinn Pálsson og Martin Hermannsson atkvæðamestir með 11 stig hvor, Styrmir Snær Þrastarson skilaði 10 stigum og Sigtryggur Arnar Björnsson setti niður þriggja stiga körfu í leiknum.

Sigtryggur Arnar mætti í viðtal í Laugardalshöllinni strax að leik loknum þar sem hann fór yfir frammistöðu liðsins og greindi leikinn. Viðtalið við Sigtrygg Arnar má sjá í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -