Upphitunartreyjur Keflvíkinga eru af dýrari týpunni að þessu sinni. Nýsprautun í Reykjanesbæ gaf þessar nýju upphitunartreyjur fyrir þennan leik með því skilyrði að mynd af meistara Sigurði Valgeirssyni (Sigga Valla) yrði framan á treyjunni. Siggi var duglegur að minna leikmenn á það að falla ekki fyrir gabbhreyfingum andstæðings með orðunum "Ekki hoppa" og er sú setning einnig prentuð á bolinn.



