spot_img
HomeFréttirEkki afskrifa hjarta Suðurnesjaliðanna

Ekki afskrifa hjarta Suðurnesjaliðanna

 

 

Domino´s deildir karla og kvenna í körfubolta eru farnar af stað. Samfélagsmiðlarnir iða af lífi og hin nýju Körfuboltakvöld á Stöð2 Sport, með fjóra misjafnlega kjaftfora spekinga sem allir hafa tengsl við Suðurnesin, gera þetta enn meira „djúsí“. Suðurnesjaliðunum er ekki spáð góðu gengi, hvorki í karla- né kvennaflokki. Það skal þó enginn afskrifa hjarta Suðurnesjaliðanna. Það er ekki að ástæðulausu að Suðurnesin eru kölluð „Mekka“ íslensks körfubolta. Frá því undirritaður fæddist hafa lið frá Suðurnesjum unnið Íslandsmeistaratitilinn 24 sinnum af 34 skiptum í karlaflokki (Njarðvík: 12, Keflavík: 9 og Grindavík: 3) og 17 sinnum af 34 skiptum í kvennaflokki (Keflavík: 15, Njarðvík: 1 og Grindavík: 1) Þeir sem halda því fram að Suðurnesin séu ekki „Mekka“ þurfa því augljóslega að hætta að innbyrða ofskynjunarsveppi og koma sér af þessum umferðareyjum.

 

En talandi um kana. Einn af eftirminnilegustu könum sem spilaði fyrir Keflavík þegar ég vermdi þar tréverkið af svo mikilli áfergju að enn eru að finnast flísar grafnar í botnstykkið á mér var Anthony Glover, fyrrum leikmaður St. Johns háskólans. Hann spilaði með Keflavík tímabilið 2004-2005 og var m.a. svo „heppinn“ að ná að æfa- og spila með Jimmy Miggins þær þrjár vikur sem hann heiðraði okkur með nærveru sinni. Þeir félagar áttu hins vegar ekki skap saman. Tony var frá New York en Jimmy frá Los Angeles og því minntu rifrildi þeirra um tónlist, stelpur og bókmenntir oftar en ekki á 2pac og Bigge Smalls. Í Noregsferðinni eftirminnilegu þar sem Keflavík lék á Norðurlandamóti félagsliða vorum við staddir á TGI Fridays eitt kvöldið. Umræðuefnið var hversu mikið og oft menn drykkju áfengi. Íslensku leikmennirnir voru frekar hógværir og töluðu um að drekka um það bil tvisvar í mánuði og Tony var á sömu nótum. Jimmy Miggins þótti það heldur rýrt og tjáði sig stórmannlega um að hann drykki eitthvað áfengt á hverjum degi, þá helst kampavín. Tony átti auðvitað ekki orð, hrissti hausinn og muldraði eitthvað við hina í hópnum af hneykslun. Ekki stóð á svarinu hjá Jimmy; „Come on man, it´s just called having fun“. Tony var ekki á sama máli og svaraði honum í anda Þórarins Tyrfingssonar; „No Jimmy, it´s called being an alcoholic“. Svo fór að Jimmy Miggins var rekinn en Tony Glover hélt starfi sínu og hjálpaði Keflavík, ásamt Nick Bradford, að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn þriðja árið í röð um vorið 2005. Tony var eins og naut að burðum og af sama skapi algjör snillingur, jákvæður og skemmtilegur. Þegar kom að landafræði var hann hins vegar ekki á heimavelli. Eftirminnilegt er þegar við vorum á leið til Noregs og einhver leikmaður spyr hann inni í klefa; „Hey Tony, have you ever been to Norway?“ Ekki stóð á svarinu; „Pfhh, I don´t know – Ask my passport…“. 

 

Þar sem ég er sjálfur úr Keflavík og stundaði nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er ég að lokum með smá orðsendingu til nemendanna í mínum gamla skóla. Ég vill endilega hvetja ykkur til að fjölmenna á leiki Suðurnesjaliðanna í vetur til að fylgjast með ykkar fólki. Fullt af frábæru körfuboltafólki stundar nám í FS og á svo sannarlega skilið að samnemendur þeirra komi og styðji við bakið á þeim í komandi  átökum. Fylgist t.d. með Jóni Arnóri Sverrissyni hjá Njarðvík. Hann er þrælefnilegur og virðist hafa erft hæfileikana og eljusemina frá föður sínum en sem betur fer útlitið frá móður sinni.  Austfjarðar sjarmörinn Andrés Kristleifsson hjá Keflavík hefur verið að vekja talsverða athygli, þá aðallega á göngum FS. Þetta kjötstykki er því miður ekki á markaðnum sem stendur en hver veit hvað hann hefur í hyggju enda er hann farinn að stunda ljósabekkina af meiri krafti en lærifaðir sinn #MG10. Jón Axel Guðmundsson er að gera frábæra hluti fyrir Grindavík og hlóð nánast í þrennur hverja helgi til að byrja með. Þá á ég við á körfuboltavellinum en ekki skeiðvellinum, ekki það að það geti ekki verið að hann „fleygi“ sér í þrennur á skeiðvellinum líka ég bara veit minna um afrek hans þar. Þá mæli ég auðvitað sérstaklega með því að FS-ingar fylgist vel með Elfu Falsdóttur og Írenu Jónsdóttur, hvort sem það er á körfuboltavelli eða samfélagsmiðlum. Þær „systur“ hafa greinilega ekki erft húmorinn frá föður þeirra fyrrnefndu. Þvílíkir meistarar!

 

Sævar Sævarsson

Fréttir
- Auglýsing -