Hamar/Þór tók á móti nýliðum KR í 18. umferð Bónus deildar kvenna í Hveragerði í kvöld. Fyrir fram mátti búast við erfiðum leik fyrir heimakonur, enda hafa þær átt undir högg að sækja í vetur og berjast fyrir lífi sínu í deildinni, á meðan KR-ingar hafa setið á hinum enda töflunnar í baráttu um deildarmeistaratitilinn.
Stærsta frétt kvöldsins var þó breyting á brúnni hjá Hamar/Þór, en Hallgrímur Brynjólfsson stýrði liðinu í fyrsta sinn eftir að hafa tekið við keflinu af Hákoni Hjartarsyni. Sú breyting skilaði liðinu mikilvægum sigri, 107–95.
Karfan spjallaði við Hallgrím Brynjólfsson nýjan þjálfara Hamars/Þórs eftir leik í Hveragerði.




