HomeLandsliðinEuroBasket 2027Ekkert eðlilega langþráður sigur

Ekkert eðlilega langþráður sigur

Íslenska landsliðið tryggði sér afar dýrmætan og kærkominn sigur gegn Portúgal í Ólafssal í undankeppni EuroBasket 2027 þar sem lokatölur urðu 62-60.

Með þessum úrslitum hafnar Ísland í þriðja sæti síns riðils og munaði grætilega litlu að liðið tryggði sér sæti á lokamótinu. Möguleiki var á að komast áfram sem eitt af þremur bestu liðunum sem enduðu í þriðja sæti sinna riðla en í þeim samanburði endaði Ísland í fjórða sæti. Það er því ljóst að íslenska liðið var aðeins hársbreidd frá því að ná takmarkinu í þetta skiptið þótt niðurstaðan hafi því miður ekki dugað til að tryggja áframhaldandi þátttöku í keppninni.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Ástu Júlíu Grímsdóttur leikmann Íslands eftir að leik lauk í Ólafssal.

Fréttir
- Auglýsing -